Nýtt líf
Bloggarar í fríi ?
23.11.2007 11:39:33 / pommurofa

Tekin!

Jamm, mín bara komin með sína fyrstu umferðarsekt á ævinni!!  Haldið ekki að smellt hafi verið af mér mynd á of miklum hraða um helgina.  Oboy oboy....  Reyndar mældist ég á 37 km hraða þar sem má bara keyra á 30 km þannig að brotið er kannski ekki geigvænlegt, en engu að síður er konan komin í "svörtu bókina".  Dóttirin alveg hreint standandi hlessa á pottþéttu mömmunni sem alltaf gerir og segir allt rétt!!!!   En mikið er gott að vera bara eins og hinir og láta nappa sig við umferðarlagabrot.  Mín borgaði sína plikt með bros á vör áðan, bara nokkuð hress með lögguna sem er að gera átak í að mæla umferðarhraða hér í íbúahverfum í Kópavogi.  Gott hjá ykkur.

Síðasta vika gekk svona bara nokkuð vel.  Náði kannski ekki alltaf að klára allt 100% og einhverju sinni var stigið aðeins út fyrir hið heilaga strik.  En svindlið var aðeins innan DDV og því kom það ekki niður á létting vikunnar.  Af mér fóru 1,2 kg sem gera 4 kg samtals fyrstu 2 vikurnar.  Mín bara nokkuð ánægð með það.

Datt með höfuðið hér á bólakaf ofaní fulla körfu af nýbökuðum brauðbollum og hummus í gærkvöldi..............hmmmm  reyndar bakaði ég þetta sjálf til að fara með á skólaskemmtun hjá dótturinni, stóð mig ágætlega þar, en þegar heim var komið brustu stíflur og mín gat ekki meir.... borðaði einar 3 bollur með hummus.  Sleppti því 2 ávöxtum í gærkvöldi og verð bara að krossleggja fingur yfir syndum.  Er nú búin að játa fyrir ykkur svo það hlýtur að vera einhver syndaaflausn fólgin í því.............


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 16:48:37 / pommurofa

Vika 1 að baki

Jæja, púff púff.... fyrsta vikan að baki.  Ekki gengið alveg áfallalaust, ýmislegt komið upp en allt reddast einhvernveginn.  Ekki sykurarða inn fyrir mínar varir - punktur og basta!   Nældi mér á sunnudaginn í auka speltbrauðsneið með hummus sem og í gærkvöldi þá féll ég í pizzu pitt.... hafði bakað handa dótturinni pizzu.... hún fékk gubbupest svo að hún hafði ekki lyst.... ég horfði á fjandans pizzuna með græðgisglampa í augum og púkinn á öxlinni sagði mér að fá mér eina sneið..... og ég kolféll og fékk mér eina....

 En í hádeginu i dag var stigið á vigtina í Garðabæ.  Á þessari viku fóru 2,8 kg. og frúin bara ánægð með það.  Við sjáum svo til með næstu viku.  Allavega ég ætla að reyna að halda mér á brautinni eins og ég lifandi get.

Kristín nefndi það á fundinum í dag að þær hefðu verið að fá undanfarið inn margar sem höfðu "fengið sér pásu" undanfarið.  Allt konur sem höfðu náð mjög góðum árangri.  Send voru bréf á þær og margar skiluðu sér inn.  Hún sagði að henni finndist svo svekkjandi að kíkja yfir spjöldin hjá þeim sem höfðu náð góðum árangri og voru hættar að mæta....  Hún var að tala um mig og fleiri.  Eiginlega svolítið skrítið að heyra að þetta fengi líka á þær. Ekki bara maður sjálfur sem er hundóánægður og svekktur með sjálfan sig með að hafa ákveðið upp á sitt einsdæmi að hætta þegar maður var á bullandi siglingu.  Jæja, tómt mál að tala um.... nú skal slegið i hestana og haldið vel í tauma.

Ekki var verra að hún vinkona mín hún Rita hafði skælt af sér 3,3 kg á fyrstu viku.  Til lukku mín kæra.  Hún gerði nú grín að því að þetta væri nú ekkert að marka þar sem að hún hefði fengið streptókokka og legið bakk í 3 daga og varla getað kingt sínu eigin slefi....hehehe  Svo pældum við aðeins í því hvað það væru margar hitaeiningar í svoleiðis gumsi..... hahahaha :lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 11:43:42 / pommurofa

Dagur 2

Byrjaði ágætlega í morgun með ristaða brauðinu og osti ásamt nógu vatni. Svo var heimasætan orðin of sein í skólasund og því mátti ég drífa mig af stað og steingleymdi ávexti.  Skóflaði nú samt í mig plómum þegar ég kom heim úr sjúkraþjálfun áðan.....

Vigtoría er komin í mitt lið, kviknar og slokknar á henni eins og vera ber og hún mun stjórna mínu áti héðan í frá.  Það sem skelfir mig er samt annað, ég er að fara út á land og þar hefur mér yfirleitt verið ansi hált á svelli......  Ætla því að fara í Bónusinn minn á eftir og skanna hillurnar eftir einhverju gómsætu, hollu og fljótlegu.  Hlýt að finna eitthvað.

 Það er margt sem er heilsubætandi, annað en það sem maður étur.  Því komst ég að þegar ég las eina af nýju bókunum sem koma út núna fyrir jólin.  Ég held að það hafi aldrei komið fyrir mig áður að ég skelli uppúr við lestur bókar, en það gerðist ítrekað við lesturinn.  Þessi bók er eftir Böðvar Guðmundsson og heitir Sögur úr Síðunni.  Nokkrar góðar sögur í sveitinni í gamla daga, þar sem Böðvar nær að lýsa svo lystilega erfiðum tímum á spaugilegan hátt, en þó án þess að manni finnist neitt minna koma til fólksins.  Mikið rosalega var þetta hressandi og skemmtileg lesning.  Ekki spillti það fyrir að ég er úr "Síðunni" (Hvítársíðu) og bjó á næsta bæ við Böðvar sem er Hvítsíðingur líka.  Mæli með þessari í jólapakkann fyrir alla þá sem hafa gaman af að fræðast um gamla tíma um leið og að heyra skemmtilegar sögur sem gengið hafa manna á milli í mörg ár.  Búin að bera undir pabba gamla hvort einhver fótur sér fyrir þessum sögum, og má segja að mér kom á óvart að þær væru ekki allar upplognar svo sniðugar eru þær.

Heyri vonandi í einhverjum sem eru að kíkja hér við.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 20:09:15 / pommurofa

Hún sveik mig xxxxxx vigtin.....

Sko ekki gæfulegt að byrja á að bölsótast á fyrsta degi í DDV eftir langa pásu.  En ég get nú barasta ekki orða bundist.

Sat hérna í hádeginu með haug af grænmeti á borðinu, nýlagaða grænmetissúpu, kaldan lax og fínheit.  Mín reif fram vigtina til að mæla allt eftir kúnstarinnar reglum.  En þegar kveikja átti á þessari líka fínu vigt eftir fríið þá barasta neitaði hún.  Allskonar tákn og munstur liðu yfir skjáinn en engar tölur.  Nú voru góð ráð dýr.  Augað er ekki eins þjálfað í skammtastærðum eins og það var orðið þegar konan sigldi beinu DDV brautina.  Því brá ég á það ráð að borða fullt af súpu og svo meira grænmeti, og svo svolítið í viðbót.... þangað til að konan stóð á þvílíku standandi blístri að annað eins hefur ekki gerst. 

En ég var snögg út að átinu loknu til að nálgast batterí í hana Viktoríu, hún skyldi sko standa sína vakt í kvöld sem hún gerði með glæsibrag.

Það sem er eiginlega fyndnast við þetta er að ég fékk símtal seinnipartinn frá henni Ritu.  Ég rakti fyrir henni raunir mínar með hana Viktoríu og fékk hún þá nett hláturkast.... hún hafði nefnilega lent í þessu nákvæmlega saman.  Vorum sammála um að það væri einhver að ýta hressilega við okkur.

Í kvöld var snædd lifur... ummmm var alveg búin að gleyma hvað þetta er gott.  Gerði svo dýrindis grænmetisgums, setti í pott eina dós af tómötum, hálfan lauk, smá hvítlauk, eitt brytjað grasker (butternut), vatn, salt, karrí, turmerik og 2 dropa af kókosbragðefni ásamt 3-4 dropum af sætuefni.  Þegar þetta var vel soðið saman þá er dásamlegt að bæta út í þetta smávegis sýrðum rjóma.  Þá verður þetta kremað og eins og að í gumsinu sé þessi fína kókosmjólk.  Á örugglega eftir að gera eitthvað svona aftur.

Fyrsti dagur að kvöldi komið og allt 100% ennþá.

Tútilítú.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2007 16:30:15 / pommurofa

Sumir fara í bloggpásu aðrir fara í BLOGGPÁSU

Veit ekki hvað skal segja um bloggpásuna mína, skammarlegt þar sem ég sé að margir hafa kíkt við bara til að athuga hvort maður er á lífi.

Ýmislegt búið að vera að gera, eins og alltaf.  Ekkert hangs á þessum bæ.

En nú er komið að stóru stundinni.  Fyrir nákvæmlega 2 árum (6. nóv) fór mín á sinn fyrsta fund hjá Vigtarráðgjöfunum.  Náði stórkostlegum árangri að mínu mati, var búin að ná af mér 25 kílóum fyrir 11. apríl 2006.  En eftir sjúkrahúslegu og "pásu" frá vigtun var eins og ég væri lent á blautu svelli og óstöðuleikinn réð ríkjum næstu mánuði.  Þó svo að reynt væri af veikum mætti að stýra sér inn á hina einu sönnu braut DDV þá var eins og eitthvað vantaði og viljaleysið hélt í taumana.  Því kom það kannski ekki á óvart að konan byrjaði að bæta á sig aftur.  

Ég segi nú eins og Sía hérna á sínu bloggi ekki alls fyrir löngu.  Að þó svo maður finni rétta taktinn og nái af sér einhverjum helling af grömmum og kílóum þá er maður ekki skuldbundinn neinum öðrum en sjálfum sér um að halda plani.  Því vill maður ekkert heyra um frá öðrum að svona kúrar virki ekki til langframa.....  Þetta er ekki kúr heldur kúvending á matarræði þar sem allir eru saddir alla daga en fá rétta skammta og öll vítamín og bætiefni úr matnum sem eldaður er frá grunni.  Þannig að það er augljóst að matarræðið virkar, svo er bara spurning um viljastyrk hvers og eins hvort þetta heldur.  Því það er morgunljóst að ef farið er yfir í sömu óhollustu og áður þá er garanterað að allt fer á þverveginn.

Á morgun á semsagt að hefja leik að nýju. Ég og stórvinkona mín hún "Rita" hér af blogginu ætlum að storma saman á fund í hádeginu í Garðabæ.  Þið ykkar sem þar verðið, endilega að pikka í okkur og halda okkur við efnið.

Hlakka til að sjá hvort að hlutirnir gangi ekki upp í þetta sinn.

kv.  Pommurófa breiðrass....


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 13:19:58 / pommurofa

Eitt skref í einu

Ekkert kraftaverk gerðist! (sbr. síðustu færslu) og mín tók sig ekki taki í átt til hollara lífs í síðustu viku.

En eitt hef ég lært....  aldrei að gefast upp, og síst á sjálfum sér !!  Og ef eitthvað er ekki að virka, þe. með þeirri aðferð sem notuð er til að ráðast á vandamál, þá er um að gera að skipta um aðferð, og athuga hvort maður hnikar sjálfum sér ekki í rétta átt.

Því hef ég ákveðið að breyta um taktík og ætla ekki að kúvenda sjálfri mér úr óhollustu yfir í hollustu skv. DDV, einn tveir og þrír.  Í gær var nammilaus dagur !!!! húrra fyrir mér.  Ætla að taka einn dag í einu og byrja á að fjarlægja nammi og gos úr matarræðinu. Maður verður nefnilega svo ánægður með sig þegar eitthvað gengur eftir áætlun, þannig að stutt skref gilda jafnt og löng skref..... bæði jafn mikilvæg.

Hvað ég geri eftir helgina verður að koma í ljós, hvort sem það verður fundur hjá DDV eða eittvhvað annað skemmtilegt og hollt.


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 23:19:02 / pommurofa

Bensín eða diesel ??

Frúin er ekki ánægð með sig þessa dagana.

Alveg hreint ótrúleg linka í manni.  Druslast ekki til að gera neitt af viti (með öðrum orðum, ekki ofvirk þessa dagana) og mér finnst draslið hlaðast upp í kring um mig og allt ómögulegt.  Helst eins og það hafi verið sett vitlaust bensín á bílinn (konuna)......

Kannski er bensínið málið...????  Allavega er ekki verið að borða hollustu þessa dagana.  Var reyndar búin að lofa sjálfri mér að taka í hnakkadrambið á sjálfri mér og byrja í átaki í þessari viku.  Reyndar er vikan ekki liðin svo að enn geta kraftaverkin gerst.  Held ég þurfi að fá einhvern til að lemja mig í gang hérna !!!! 

Allavega er planið það að fara aftur að borða skv. danska.  Af hverju????  Jú af því að ég veit að það virkar.  Ósköp einfalt svar.   En það er nú víst ekki eins einfalt að klöngrast á beinu brautina og halda þeirri stefnu.

Vonandi, vonandi get ég sannfært sjálfa mig um að byrja !!  

Getur einhver hér hjálpað villtri konu?


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 20:11:53 / pommurofa

Sumardvöl í sveit

Komin heim úr heiðardalnum eftir sumardvöl í Borgarfirðinum. 

Sólríkt og hlýtt sumar brátt að baki og ekkert hægt að kvarta yfir þvi.  Helsta umkvörtunarefni væri kannski hömluleysi varðandi innkaup á matvöru og át.  En það þýðir nú lítið að pirrast á svoleiðis, hvorki nú né áður, það hef ég þó allavega lært.  Mín er nú ekki í þeirri þyngd sem ákjósanlegust er fyrir konuna.  Eigum við ekki að segja að maður sé að nálgast rauða strikið, þ.e. tímann þegar maður þorir varla lengur á vigtina.  Einu sinni var hún nú vinkona mín.... hmmm... en það er svona með vinina, ef maður vanrækir þá er líklegt að þeir fjarlægist nema þeir séu þeim mun tryggari.  Hún Vigtoría fyrrverandi vinkona er líklega ekki í trygga vinahópnum.

En mín er frekar lúin eftir sumarið, mikið verið að stússast og elda mat.......  Þarf því tíma til að komast í samt form aftur, byrjuð aftur í sjúkraþjálfun og svo á að taka þetta eitt af öðru....  Tækjasalurinn í sjúkraþjálfuninni er næstur á listanum og svo sundlaugarnar.  Hver veit nema maður verði farinn að arka um Fossvogsdalinn áður en langt um líður.

Mín ætlar að vera fastagestur á heimasíðu SuperS þar sem henni er að takast það sem ég þarf að gera.... byrja aftur á danska.

Þið sem hafið kíkt hér inn í sumar... Sorry fyrir bloggfríið mitt og takk fyrir tryggðina.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 22:29:03 / pommurofa

Sundferð að kveldi... algjör draumur

Vorum að koma úr sundi, fjölskyldan, skruppum í Salalaugina eftir kvöldmatinn.  Þetta er nú meiri heilsubótin.  Maður kemur eitthvað svo mjúkur og glaður upp úr þessum dásemdarpottum sem nudda mann og hita í gegn.  Dæs......

Annars er vorið komið, mín er bara alveg viss. Þvottur úti á snúru allan sólarhringinn.... hehehe

Mín er byrjuð í Rope Yoga aftur.  Núna hjá einni kórsysturinni sem var að útskrifast sem kennari og vantaði tilraunadýr til að æfa sig á.....  Það er skemmst frá því að segja að í gær var fyrsti tíminn... hmmm.... og það hreinlega brakar í öllum vöðvum í dag.  Rassinn svo aumur að varla er hægt nema rétt tilla sér á hann, alls ekki hlunka sér í sæti eins og maður er vanur.  Svo er mæting í fyrramálið kl. 9:00.  Það verður enginn afsláttur veittur og mæti því samviskusamlega þrátt fyrir að ég viti að vöðvarnir eigi eftir að kveina og kvarta.  En eftir nokkur skipti þá verður maður orðinn það mjúkur að maður finnur minni harðsperrur.

Svo eru það kórmálin.  Um helgina var mega slútt hjá okkur.  Leigðum okkur hús og elduð var gúllassúpa af bestu gerð.  Gvöð hvað var gaman.  Mikið er gott og uppbyggilegt að þekkja svona margar skemmtilegar konur.  Við sungum og trölluðum, tókum þátt í leikjum og dönsuðum langt fram á nótt.  Maðurinn minn kom með og þegar liðið var dálítið á kvöldið sagði hann við mig..... "ég skil nú alveg að þú sækir eftir að komast í þennan félagsskap, einu sinni í viku..."  Þar rataðist karli rétt orð á munn..... heldur betur.   Ekkert betra fyrir sálina en að umgangast jákvætt og lífsglatt fólk.  Og svo virðist sem að fólk sem finnst gaman að syngja, sé bara óvenju lífsglatt og skemmtilegt.

Mjúkar sundkveðjur til ykkar allra.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 12:47:07 / pommurofa

Bloggleti

Kannski það fylgi hækkandi sól að maður nenni síður að vera hér inni og blogga um heima og geyma.  Allavega má segja að það er betra að þjást af bloggleti en leti almennt séð.  En sú plága hefur nú ekkert verið að kíkja í heimsókn til mín, tja nema varðandi bloggið.....

Hér er búið að vera allt á fullu við að koma upp baðinnréttingu... já loksins segi ég og dæsi hressilega.  Búin að bíða lengi eftir skápum á mitt "nýflísalagða" baðherbergi.  Baðinnréttingin sem við höfðum pantað hjá fyrirtæki hér í bæ klikkaði hressilega svo nú var farið í að versla þetta annarstaðar og algjörlega breytt um stíl í leiðinni.  Farið úr því að hafa eikar innréttingu í hvítt háglans....  Tja, þegar svona langan tíma tekur að gera upp baðherbergi má búast við að nokkrir tískustraumar fljúgi framhjá á meðan..... segi nú ekki meir.

Svo er það sveitin sem á hug okkar allra í fjölskyldunni.  Bústaðurinn heillar ásamt þúfum og græðlingum..... ahhhh það er engu líkt að sitja í sínu húsi uppi í sveit í algjörri þögn og hlusta á fuglana vera í hreiðurgerð og hvininn í stráum í vindi.......    Dóttirin er náttúrulega forfallinn "dýristi" þ.e. er alveg húkkt á dýrum svona almennt.  Og nú fer sauðburður í hönd, fyrstu lömbin fædd.  Og hún skilur nú ekki af hverju hún þarf að sitja á skólabekk þegar slík tíðindi gerast og þannig dásemdartími fer í hönd.  Verð nú bara að segja að ég skil hana vel.  Man þá tíð í denn þegar börnin voru að koma í sveitina í "sauðburðar frí" til að aðstoða okkur og þótti ekki mikið af skólayfirvöldum að gefa frí til að upplifa þennan frábæra tíma þegar lífið kviknar í sveitinni.

Matarmál..... tja ætli ég láti þessa málsgrein ekki bara duga um þau.....

Kórslútt framundan á laugardaginn, hlakka mikið til.  Er á fullu við að útbúa myndashow til að sýna frá tónleikum og utanlandsferðinni.  Miklu meiri vinna en margur gerir sér grein fyrir.

Takk fyrir innlitið þið þolinmóða fólk.  Kossar og knús.


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2007 17:24:46 / pommurofa

Skýrsla ....

Jæja gott fólk.  Sé að hér er alltaf "umferð" á hverjum degi svo mér finnst eiginlega skylda að skrifa eitthvað til að friða samvisku mína.

Tja, hvar skal byrja.

Jú tónleikar Kvennakórs Kópavogs voru haldnir 25. mars sl. í Salnum.  Alveg hreint framúrskarandi skemmtilegt og upplifun að fá að syngja þarna.  Held að tónleikagestir hafi bara skemmt sér vel og ekki var það verra að hafa Regínu Ósk og Engla kórinn með okkur.  Hlakka bara til næstu tónleika, hvenær sem þeir nú verða haldnir.

31. mars var haldið til Búdapest með kórkonunum.  Mikil spenna í lofti þar sem við vorum að fara að keppa í alþjóðlegri kórakeppni, Musica Mundi.  Við bæði nutum tónlistarveislu þar sem við hlustuðum á marga stórkostlega kóra sem og gáfum af okkur með því að syngja sjálfar.  Keppnin sjálf var reynsla út af fyrir sig !  Allt upp á punkt og prik hjá Ungverjunum, kórinn var teymdur um tónlistarhúsið Palace of Arts eins og lömb á leið til slátrunar.... hehehe... nei nei.  Þetta fór ekkert illa í okkur konurnar enda frá Íslandi og við látum nú ekki eina svona alþjóðlega kórakeppni slá okkur út af laginu...   Þarna voru mættir 47 kórar frá 20 löndum sem kepptu í mismunandi "category" eftir gerð og hæfni kóranna.  Svo var heljarinnar dómnefnd sem gaf stig og held ég að þeir hafi verið 6 sem sátu og hlustuðu  á okkur.  Við fengum silfur diplómu, sem okkur þykir mjög góður árangur hjá 5 ára gömlum kór.  Einkunnir eru frá 1 og upp í 30 þar sem 1-10 gefur bronze diplomu, 10-20 gefur silfur og 20-30 gefur gull.  Þannig skipti ekki máli í raun í hvaða category við kepptum þar sem einkuninn sagði til um hversu góður kórinn er.   Við fengum rétt tæp 14 stig og í himnasælu yfir því.  Enda var verið að etja kappi þarna við algjöra "ofur" kóra sem voru með allskyns hreyfingar og fleira samtvinnað lögunum..... 

Ferðin sjálf var stórkostleg, enda varla annað hægt þegar 31 kona fer saman í útlandaferð.  Engir kallar að reka á eftir okkur á meðan við stóðum hver innan um aðra inni í skartgripabúðum, já eða undirfatabúðum..... gátum skoðað eins lengi og okkur lysti...  Skrýtið að vera ekki með mannin með, en bara assssskoti skemmtilegt líka.  Ýmislegt kom uppá sem aldrei myndi koma uppá nema þegar margar konur koma saman, misvanar útlöndum.... hehehe... ég er enn að tísta yfir sumu.....

Eftir að heim var komið, á föstudaginn langa, var haldið í sveitina og komum við aðeins heim á þriðjudegi eftir páska svona rétt til að ég gæti farið í mitt mánaðarlega tékk niðri á Lansa.  Allt fínt þar og aftur brunað í sveitina... þar var unnið stíft við að panelklæða veggi og hafa það gott inni á milli.  Svo var komið í bæinn á föstudaginn þar sem við ætluðum að mála stigaganginn hér í blokkinni um helgina.  Það var snarað sér í það á laugardaginn.... allt málað hátt og lágt... handrið, veggir, gluggar, hurðir..... dagurinn dugaði ekki alveg þótt við værum 12 við þetta svo við héldum áfram á sunnudeginum, skipt um ljósin í stiganum.... ryksugað, skipt um dyrabjöllumiða...   vá...ég verð þreytt á að skrifa þetta.

Þannig að hér sit ég, hálf dösuð eftir þessa törn síðustu daga og vikur.  En mikið afskaplega er gaman að geta verið svona á fullu, hugsið ykkur hvað maður er heppinn, ekki geta þetta allir það er víst.  Það er nú samt þannig að ég þoli nú ekki alveg eins vel og hinir.... og þá bara klárast batterí og mín verður svona "loftlaus" og þá er komið að hvíldartíma....

Svo er nú barasta sumarið að koma !!!!

Tókuð þið eftir því að ekki var minnst orði á matarmál hér að ofan.... það er líklega vegna þess að ég hef ekki frá neinu að segja í þeim málaflokki sem ég er stolt af ;)

Vona að þið hafið nennt að lesa þessa langloku mína..... sjáumst


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 09:52:14 / pommurofa

Er á lífi...

Já, ég er á lífi og er alltaf að kíkja hér inn annaðslagið.  Það er bara assssskoti mikið að gera hjá mér þessa dagana og enginn tími fyrir blogg.  Lofa að koma hér inn og gefa skýrslu mjög fljótlega.  Takk þið öll sem hafið þó kíkt hér við til að athuga með konuna.....


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 14:17:53 / pommurofa

Áttavillt og danskan flogin....

Konan er orðin áttavillt aftur og danski hreimurinn horfinn eins og dögg fyrir sólu !!

Svona gerast kaupin á eyrinni, ansi fljótt!  Hélt ég væri að nálgast það að finna beinu brautina en eitthvað hefur kortið sem ég er með í höndunum snúist þannig að ég veit ekkert hvar ég er stödd, hvað þá hvert ég stefni.  En ekkert að fara að gefast upp.  Veit ég kann þetta.  Bara ekki alveg að fara eftir prógramminu.... kannast einhver við þetta !!??

Brjálað að gera hjá minni.  Verið að leggja lokahönd á tónleika.  Æft stíft og auðvitað verið að hnýta lausa enda varðandi alltsaman.  Ótrúlega margt sem þarf að huga að og ekkert má gleymast.  Svo er bara að njóta dagsins og gera sitt besta.  Meira er víst ekki hægt að biðja um.  Tónleikarnir verða á sunnudaginn kl. 14:00 svo ekki er nú mikill tími til stefnu.   www.salurinn.is

Búdapest ferðin er að taka á sig mynd.  Prógrammið komið bæði varðandi keppnina og annað sem á að bardúsa.  Mikið planerí og mín alveg á kafi í að gera þetta sem allra best og átakaminnst fyrir kórkonurnar.  Verður örugglega alveg frábærlega gaman.  Hvað er skemmtilegra en að fara í 6 daga ferðalag erlendis með 31 hressum og söngglöðum konum.  Ég bara spyr.  Hlakka óendanlega mikið til.  Ætla sko að prófa allskonar mat og drykki þarna úti.  Veit ekki hvort þeir hafi nokkurntíma heyrt af "danska" fæðinu hvað þá skilji dönsku.  En ætla ekkert að spá í það, bara njóta stundar og ferðafélaga.


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 14:18:49 / pommurofa

Danskur hreimur.....

Er það ekki byrjunin að vera kominn með smá danskan hreim.....

Segi ekki að ég sé búin að finna gírinn, beinu brautina og allt hvað þetta nú heitir.  En þegar ég steig á vigtina fyrir 2 dögum var ljóst að nóg var komið af sukki og svínaríi.....  Þarft að taka í taumana.  Og þvi var borðað nokkuð skynsamlega í gær, í fyrsta sinn í langan tíma.  Ekki alveg 100% en engin óhollusta.  Dagurinn í dag... so far so good !!

Tek einn klukkutíma fyrir í einu.....  

Batnandi fólki er best að lifa.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 20:29:23 / pommurofa

Stjórnlausa konan

Ístöðuleysi, hömluleysi, stjórnleysi eru andstaðan við stöðugleika og festu.  Og það er alveg ljóst hvoru megin ég er við línuna þessa dagana.

Hér var áður eldað upp á punkt og prik, allt í réttum skömmtum og rétt hráefni.....  En liðin er sú tíð, held hún hafi hreinlega fokið til í þessu álagi sem hefur verið í kring um mig síðustu daga og vikur.  Sko ég held hreinlega að það sé ekki nema fyrir hraustasta fólk að vera 75% öryrkjar... allvega svona fólk eins og mig, sem aldrei getur sagt nei við nokkurn mann og er algjörlega ómissandi allstaðar þar sem þarf að taka til hendinni.  Asskotans óeðli, ætli þetta sé ættgengur asskoti ??!!

Já, mikið búið að vera að gera.....   Barnaafmæli, kórferð barnana þar sem elda þurfti ofaní 50-60 manns og passa börnin, svo eru kóræfingar lon og don.  Og auðvitað tók ég að mér gjaldkerastarfið í kórnum, var verið að skipta um stjórn svona á besta tíma.  Tónleikar í Salnum í Kópavogi sunnudaginn 25. mars og svo verður haldið til Búdapest 31. mars til að keppa þar á alþjólegri kórakeppni.  Má segja að hér sé planlagt og skipulagt dag og nótt.  Kíkið endilega á www.salurinn.is  þar er umfjöllun um okkur í Kvennakór Kópavogs.  Kannski þekkið þið mig á myndinni ???

 Auðvitað gefur sig eitthvað í látunum.  Matarræðið fór fyrst !!  Svo hefur hnéð verið að linast og tók ég nú bara til minna ráða í dag og fékk tíma hjá gigtarlækninum og lét sprauta í það.  Olnboginn er slæmur, ætlum að reyna að kýla hann kaldann með bólgueyðandi ef það text ekki, þá bara sprautu eftir 2 vikur.  Hmmm.... ekki minn stíll að kvarta, en búið að vera doldið töff undanfarið.  En eftir að hverri lægð er náð, þá liggur leiðin ávallt uppávið.  Svo nú hlakka ég bara til þess að fá lipra löpp, liðugan olnboga og meiri tíma til að hvíla mig á milli tarna.  Og hvað þá tilhlökkunin vegna tónleikanna og utanlandsferðarinnar......   Sko mín er komin með gulu gleraugun og þá er allt mögulegt..... ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Leitarbox

Klukkan