Nýtt líf
Bloggarar í fríi ?
23.11.2007 11:39:33 / pommurofa

Tekin!

Jamm, mín bara komin með sína fyrstu umferðarsekt á ævinni!!  Haldið ekki að smellt hafi verið af mér mynd á of miklum hraða um helgina.  Oboy oboy....  Reyndar mældist ég á 37 km hraða þar sem má bara keyra á 30 km þannig að brotið er kannski ekki geigvænlegt, en engu að síður er konan komin í "svörtu bókina".  Dóttirin alveg hreint standandi hlessa á pottþéttu mömmunni sem alltaf gerir og segir allt rétt!!!!   En mikið er gott að vera bara eins og hinir og láta nappa sig við umferðarlagabrot.  Mín borgaði sína plikt með bros á vör áðan, bara nokkuð hress með lögguna sem er að gera átak í að mæla umferðarhraða hér í íbúahverfum í Kópavogi.  Gott hjá ykkur.

Síðasta vika gekk svona bara nokkuð vel.  Náði kannski ekki alltaf að klára allt 100% og einhverju sinni var stigið aðeins út fyrir hið heilaga strik.  En svindlið var aðeins innan DDV og því kom það ekki niður á létting vikunnar.  Af mér fóru 1,2 kg sem gera 4 kg samtals fyrstu 2 vikurnar.  Mín bara nokkuð ánægð með það.

Datt með höfuðið hér á bólakaf ofaní fulla körfu af nýbökuðum brauðbollum og hummus í gærkvöldi..............hmmmm  reyndar bakaði ég þetta sjálf til að fara með á skólaskemmtun hjá dótturinni, stóð mig ágætlega þar, en þegar heim var komið brustu stíflur og mín gat ekki meir.... borðaði einar 3 bollur með hummus.  Sleppti því 2 ávöxtum í gærkvöldi og verð bara að krossleggja fingur yfir syndum.  Er nú búin að játa fyrir ykkur svo það hlýtur að vera einhver syndaaflausn fólgin í því.............

Dídí skrifaði
Á mínum 7 keyrslu árum hef ég fengið eina sekt. Enda er ég einstaklega löghlýðinn ökumaður og algjör skræfa sem aðstoðar mig að halda mig undir hraðamörkum. Hinsvegar á maður það til að gleyma sér eða fatta ekki að maður er á 50 en ekki 60 km svæði og finnast mér 7 km/klst yfir hámarkshraða ansi nojað hjá þeim. :) Var sektin há? Maður þarf kannski að fara að rýna betur á þessi skilti svo maður lendi ekki í svona vél! :D En til hamingju annars með flottan létting. :)
gorkúlan skrifaði
GOTT AÐ LÖGGAN ER Á VAKTINNI OG BOLLURNAR MJÚKAR;)....GANGI ÞÉR VEL.....
Sigríður Jörundsdóttir skrifaði
glæsilegt hjá þér
Gunna Stína skrifaði
Hæ mín yndisleg og gleðilegt nýtt ár. Ég er líka að reyna að koma mér aftur heim til Ívars. Heilt ár í veikindum og veseni og endalausu áti........skal verða annað uppi á teningnum þetta árið. Held samt að ég verði að fá aðstoð og þá er það bara AK. Langar að heyra frá þér.
EllyMae skrifaði
Ég er einmitt ein af þeim sem er að koma aftur ;) Ótrúlega erfitt að stíga fyrsta skrefið og mæta...maður er svo með skottið á milli lappanna og býst við að allir dæmi mann...sem maður gerir auðvitað bara sjálfur. Frábært að vera byrjaður aftur :) Kv. EllyMae
lett i lund skrifaði
Halló! Var þér nokkuð stungið inn fyrir hraðasektina? :/ Hvar er konan?
junibolla skrifaði
Hva er pommurófan bara týnd og tröllum gefin??

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Leitarbox

Klukkan