Sko sumir taka sér pásu frá blogginu, og aðrir taka sér
PÁSU..... það er líklega ég sem þar um ræðir.
Var einhvernvegin ekki í bloggstuði síðustu vikur.... svo margt
að stússast..... kvef og fínerí.... úff... á ég nokkuð að finna
fleiri afsakanir ??? Nei enda þarf svosem ekkert að afsaka,
mín bara ekki í stuði.
Jæja, annars er bara allt gott af mér og mínum. Búin að
eiga yndisleg rólegheitajól með fjölskyldunni. Mikið borðað,
eins og liklega á fleiri stöðum. Nú eru áramótin framundan
með öllum hvellunum og ljósunum sem margir elska. Ég er svo
heppin að vera ekki með flugeldaveikina en það er nú ekki
hægt að segja um hina tvo fjölskyldumeðlimina, þau eru
sprengjusjúk. Og akkúra núna er verið að krúsa á milli
flugeldastaða (bóndinn og níu ára dóttirin) og skoðað og líklega
keypt í 1-2 höldupoka. Ég læt sem ekkert sé, enda ekkert eins
dýrmætt eins og gleðibros á andliti þeirra sem manni þykir vænt
um. Já og það má segja að þau brosi með öllu andlitinu þegar
farið er að kveikja í herlegheitunum.
Á nýju ári skal hugað enn og aftur að heilsusamlegum
lífsstíl. Borða skal hollt og gott og reyna á enn og aftur að
halda áfram að skræla af sér nokkur kíló. Bóndinn segist
ætla að vera með og er mikill styrkur af því, sérstaklega
þegar búið er að taka svona langa pásu og leyfa sér svona
margt. Sjáum til, best að lofa ekki of miklu.
Þið trúu og tryggu sem kíkið hér inn þrátt fyrir lítil
skrif. Takk fyrir að vera hér þrátt fyrir fjarveru
mína. Lofa að vera duglegri héðan í frá. Gleðilega
jólarest og eigið þið yndisleg áramót.