Tómatsúpa Pommurófu:
(súpa sem ég geri alltaf stóran skammt af og á inni í kæli, handhægt og umfram allt mjög gott)
2-3 dósir af söxuðum tómötum (getið notað td. Anna tómata úr Bónus)
fyllið svo dósirnar af vatni og bætið út í pottinn
2 meðalstórir kúrbítar (zuccini) skornir frekar smátt
250 gr gulrætur skornar frekar smátt
1 vænn laukur skorinn smátt
400 gr sveppir skornir smátt
4 góðir hvítlauksgeirar skornir smátt
1 1/2 stór grænmetisteningur
1 1/2 stór nautakrafts teningur
1/2 dl tómatpúre (fínt pure í túpum frá Euroshopper í Bónus)
2 tsk timian
Salt og pipar
Svo smakkið þið þetta aðeins til og bætið í kryddi ef þarf.
Til að poppa súpuna upp er mjög gott að setja líka í hana sólþurrkaða tómata (fást án olíu í kælinum í Bónus). Og auðvitað að nota það grænmeti sem ykkur finnst best !!!
Svo þegar ég fæ mér súpuna, þá oft borða ég hana bara svona eins og hún kemur fyrir, en hér er nokkrar útgáfur:
Skella út í hana rækjum, 1 msk af taco sósu og 1 msk af sýrðum (dásamleg mexikönsk sjávarréttasúpa)
Setja út í hana hálfan skammt af kjúklingabaunum og eitt harðsoðið egg (matarmikið og gott)
Setja út í hana 120 gr af kjúkling (sem ég á til í frystinum tilbúið í pokum, afgangar úr matnum sem ég ríf niður og frysti) og aftur 1 msk af taco sósu og sýrðan.
Setja út í hana afgang af fiskinum frá deginum áður...... osfrv.